Almenningsíþróttir eiga vaxandi fylgi að fagna í Grindavík. Hlaupahópur Grindavíkur er farinn að æfa tvisvar í viku og hjólahópurinn Team Grindavík er einnig farinn að æfa tvisvar í viku. Grindavíkurbær hefur ákveðið að styðja við bakið á þessum hópum til að byrja með og bjóða þátttakendum sem æfa með þeim ókeypis í sund eftir æfingarnar í október og nóvember.
Hlaupahópur Grindavíkur: Æfingar á miðvikudögum kl. 19:45 og á sunnudögum kl. 10:30. Hist er við íþróttamiðstöðina. Allir velkomnir. Facebooksíða hópsins er Hlaupahópur Grindavíkur.
Hjólahópurinn Team Grindavík: Æfingar á miðvikudögum kl. 18:30 og á sunnudögum kl. 10:00. Hist er við íþróttamiðstöðina. Facebooksíða hópsins er Team Grindavík.
Ljóst er að ef vel tekst vil gæti verið kominn grunnur að stofnun almenningsíþróttadeildar UMFG ef vilji er fyrir hendi. Grindvíkingar eru hvattir til þess að taka þátt í þessari heilsueflingu og mæta vel búnir eftir veðri á æfingar og með endurskin sem hæfir birtuskilyrðum.