Þetta skólaár mun Heilsuleikskólinn Krókur í samstarfi við Grunnskóla Grindavíkur vinna að þróunarverkefninu Hér og nú. Verkefnið snýst um að innleiða núvitund í leikskóla og yngstu bekki grunnskóla með það að markmiði að efla tilfinningalegt jafnvægi, jákvæða félagslega hegðun og vellíðan bæði nemenda og kennara.
Í verkefninu verður lögð áhersla á jógaiðkun, núvitund og hugleiðslur aðra hverja viku í hreyfisal og inni á öllum deildum í leikskólanum. Í grunnskólanum verða allir íþróttakennarar með í verkefninu, kennarar í 1. - 3. bekk auk þess sem boðið verður upp á núvitund í vali í efri bekkjum.
Núvitund í menntun ungra barna hefur verið að ryðja sér til rúms síðustu ár og sýna margar rannsóknir fram á að hugleiðsla gefur þeim sem iðkar hana færi á að læra og þekkja sjálfan sig og tilfinningar sínar. Hún eflir félagslegan þroska og stuðlar að jákvæðum samskiptum við aðra. Hún styður jafnframt við námsáhuga barna, eykur einbeitingu þeirra og athygli, minnkar prófkvíða og eykur árangur í námi. Því er til mikils að vinna.
Þetta verkefni er eitthvað sem hefur verið að gerjast í þó nokkurn tíma hjá okkur á Króki. Í mörg ár hefur verið unnið með jóga sem einn lið í samskiptaverkefninu Rósemd og umhyggju ásamt því að jógaiðkun tengist bæði andlegri og líkamlegri heilsu samkvæmt heilsustefnunni. Einnig hafa nokkrir kennarar leikskólans stundað saman jóga tvisvar í viku í um sex ár. Margir kennarar skólans hafa fundið jákvæð áhrif jóga og hugleiðslu hvort sem var hjá börnunum, á eigið líf eða í vinnunni.
Í fyrra vor bauð Landlæknisembættið nokkrum kennurum á núvitundarnámskeið í tengslum við þróunarverkefnið Heilsueflandi leikskóli sem Krókur tók þátt í. Eftir það vaknaði áhugi á að aðlaga núvitund að samskiptastefnu skólans. Eftir að hafa skoðað rannsóknir um áhrif núvitundar, hugleiðslu og jóga í námi barna urðum við enn sannfærðari um að núvitund væri eitthvað sem við vildum að börnin hefðu í farteskinu í framtíðinni. Í kjölfarið fóru kennarar á námskeið og ráðstefnur um núvitund því þekking þeirra á efninu er forsenda þess að verkefnið skili tilætluðum árangri.
Við upphaf síðasta skólaárs gaf foreldrafélagið leikskólanum fjórar hugleiðsluskálar og notuðum við skólaárið til að þróa okkur í að gera hugleiðslur með börnunum. Það gekk vonum framar og sáum við fljótlega jákvæð áhrif þess bæði á börn og kennara. Börnin áttuðu sig fljótlega á hvað það að hafa ró í smá stund og minnka hugsanirnar væri gott fyrir þau sjálf. Fljótlega kom í ljós að börnin gátu mun meir en búist var við og að þau voru fljót að tileinka sér aðferðirnar. Lögð var áhersla á að börn voru ekki neydd til þátttöku þannig og fengu þau börn að fylgjast með óáreytt, sem er núvitund í sjálfu sér. Reynsla okkar er sú að börnin enda á því að taka öll þátt þó svo þau segist ekki vilja vera með til að byrja með.
Aðal markmiðið með verkefninu er að gefa börnunum tæki í hendurnar. Tæki til að læra að þekkja sjálf sig, líkamann, hugann og tilfinningarnar. Að lifa í núinu er eitthvað sem hver og einn gerir við upphaf lífs en á lífsleiðinni tapa margir þessum eiginleika og einbeita sér að fortíðinni eða framtíðinni í stað þess að njóta augnabliksins. Núvitund snýst ekki um að komast á einhvern ákveðinn stað í lífinu eða í eitthvað ákveðið ástand, heldur snýst þetta um að vera eins og við erum. Með því að iðka jóga og núvitund verðum við meðvitaðri um hugsanir okkar og tilfinninga og lærum að vera til án þess að vera stöðugt að dæma okkur. Með þessu ætti lífshamingja okkar ekki aðeins að eflast heldur lærum við einnig að takast á við lífið hér og nú þegar það getur verið erfitt og óþægilegt.
Harpa R. Hallgrímsdóttir