Ómar Guðjónsson og Tómas R. Einarsson munu kynna plötuna Bræðralag á tónleikaferð um landið í haust. Í Grindavík verða tónleikarnir á veitingastaðnum Bryggjunni þriðjudagskvöldið 29. september og hefjast þeir kl. 21. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Nánar um tónleikana:
Gítarleikarinn Ómar Guðjónsson og kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson hafa spilað saman í áratug, ýmist tveir einir eða í fjölmennari hljómsveitum. Innanlands og utan: Flatey, Djúpavík, Moskva, Andorra, Berlín, Havana, Washington DC....
Nú hafa þeir gert langþráðan draum að veruleika: að taka upp plötu þar sem þeir semja hvor fyrir annan. Þar er músíkölsk samræða æðsta markmiðið, hvort sem um er að ræða sveiflu, latíntónlist eða ballöður.
Upptakan fór fram á Kolsstöðum í Borgarfirði, á sólríkum sumardögum þar sem hvít jöklabreiða bar við augu út um upptökuglugga ásamt hrauni og blómstrandi kjarri.
BRÆÐRALAG Um land allt!