Næst komandi þriðjudag, 8. september, er Bókasafnsdagurinn árlegi. Í tilefni dagsins verða engar sektir innheimtar á bókum í vanskilum! Notið tækifærið og komið öllum bókasafnsbókum sem gætu legið á heimilinu, aftur á safnið. Einnig verður það síðasti dagurinn þar sem hægt verður að ná sér í bækur á 100 kr. Hlökkum til að sjá ykkur á safninu!