Nú reynir á stelpurnar

  • Fréttir
  • 2. september 2015

Grindavíkurstelpur mæta Augnabliki í 8 liða úrslitum umspils í 1. deild kvenna í knattspyrnu kl. 17:30 á Grindavíkurvelli í dag, miðvikudag. Þetta er seinni leikur liðanna en þeim fyrri lyktaði með jafntefli 2-2. Því er gríðarlega mikið í húfi fyrir stelpurnar en sigurvegarinn kemst í undanúrslit þar sem sæti í Pepsideild kvenna verður í húfi. 

Nokkur meiðsli hafa verið í herbúðum Grindavíkurliðsins en markadrottingin Margrét Albertsdóttir sem missti af fyrri leiknum, verður líklega klár í kvöld.

Grindvíkingar eru hvattir til þess að mæta á völlinn og styðja við bakið á stelpunum sem hafa skemmt okkur með flottum fótbolta í allt sumar.

Að vanda hafa stelpurnar auglýst leikinn á skemmtilegan hátt eins og sést á myndinni.

Ókeypis aðgangur í boði styrktaraðila.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir