Aflraunakeppnin Víkingaáskorunin (Giants Live Viking Challange Iceland ) sem haldin var á Sjóaranum síkáta í Grindavík í sumar, verður sýnd á einni af Eurusportrásunum í kvöld kl. 17:30 að íslenskum tíma. Keppnin var hluti af keppnisröðinni "Gianst Live" og veittu þrjú efstu sætin í keppninni þátttökurétt í keppninni um sterkasta mann í heimi. Tólf keppendur voru mættir til leiks, þar af átta erlendir keppendur en meðal Íslendinga sem kepptu var Fjallið sjálft, Hafþór Júlíus Björnsson, sem gerði sér lítið fyrir og sigraði mótið og tryggði sér þ.a.l. þátttökurétt í keppninni um titilinn Sterkasti maður í heimi.
Hér má sjá meira um keppnina sem var á Sjóaranum síkáta.
Nánari upplýsingar um dagskrá Eurosport má sjá hér.