Hinn glæsilegi körfuboltavöllur við Hópsskóla virðist vera mjög lokkandi í augum skemmdarvarga en í gær var kveikt í undirlagi vallarins. Er þetta í annað skipti sem kveikt er í vellinum en undirlag hans er úr gúmmíplötum sem fuðra hratt upp ef eldur kemst í þær. Skipta þarf út 15 plötum til að gera við skemmdina og eru flestar þeirra gjörónýtar.
Snarræði nágranna vallarins varð til þess að ekki fór verr en Guðmundur Bragason náði að slökkva eldinn ásamt syni sínum Braga. Börn sem voru að leik í nágrenni vallarsins urðu eldsins vör og létu Guðmund vita sem fyllti flöskur og hellti á eldinn sem kraumaði í gólfplötum.