Skrifađ undir hjá körfunni - Íris Sverris komin heim

  • Körfubolti
  • 20. júlí 2015

Á dögunum skrifuðu nokkrir leikmenn undir samninga við Körfuknattleiksdeild Grindavíkur. Ber þar hæst að Íris Sverrisdóttir hefur tekið fram skóna á ný og snýr aftur heim til Grindavíkur eftir að hafa leikið síðast með Haukum. Þá skrifaði Daníel Guðni Guðmundsson formlega undir sinn samning en hann mun þjálfa liðið næstu tvö ár og jafnframt spila með karlaliðinu.

Þá skrifuðu 3 ungar og efnilegar stelpur einnig undir 2 ára samninga en það eru þær Halla Garðarsdóttir, Hrund Skúladóttir og Jeanne Sicat.

Stjórn Körfuknattleiksdeildar UMFG hefur líst yfir gríðarlegri ánægju með þessar undirskriftir og bindur miklar vonir við stelpurnar og Daníel. Það hlýtur að vera þjálfaranum nokkur léttir að fá Írisi til liðs við hópinn enda hefur kvarnast nokkuð úr honum frá síðasta ári. Pálína Gunnlaugsdóttir skrifaði á dögunum undir hjá Haukum og þá er óvíst hvenær þær María Ben og Ingibjörg Jakobsdóttir komast aftur af stað þar sem María er ólétt og Ingibjörg að jafna sig eftir meiðsli.

Á myndinni eru frá vinstri: Lórenz Óli, formaður kkd. UMFG, Hrun, Jeanne, Daníel Guðni, Halla og Íris.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir