Þann 29. júní verða liðin 35 ár frá því Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands, fyrst kvenna til að verða þjóðkjörin forseti, og 100 ár frá því konur hér á landi fengu kosningarétt. Af þessu tilefni hafa á fjórða tug félagasamtaka og stofnana, þar á meðal Skógræktarfélag Íslands, tekið höndum saman og efna til hátíðardagskrár sunnudaginn 28. júní.
Skógrækt, landgræðsla og náttúruvernd hafa verið Vigdísi afar hugleikin og hefur hún haldið þeim málefnum á lofti á opinberum vettvangi. Eitt besta dæmið þar að lútandi er að snemma í forsetatíð sinni tók hún upp þann sið að gróðursetja þrjú tré á þeim stöðum sem hún heimsótti - eitt fyrir stúlkur, eitt fyrir drengi og eitt fyrir komandi kynslóðir.
Í samvinnu við Grindavíkurbæ verða af þessu tilefni sett niður þrjú tré, af pilti, stúlku og fulltrúa elstu kynsslóðarinnar. Verða trén sett niður í minningarlund sem staðsettur verður í fyrirhuguðum Sjómannagarði milli Hafnargötu og Mánagötu. Hefst athöfnin klukkan 13:00 á laugardaginn (27. júní) og eru allir hvattir til að mæta.