Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkti á bæjarstjórnarfundi í apríl sl. að loka öllum starfsstöðvum sínum frá og með kl. 12:00 á kvenfrelsisdaginn föstudaginn 19. júní næstkomandi og veita starfsfólki frí. Með ákvörðuninni sýnir bæjarstjórn 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna virðingu og hvetur starfsmenn til að taka þátt í skipulögðum hátíðahöldum þann dag sem áformuð eru í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna. Stofnanir bæjarins því lokaðar frá og með kl. 12 á föstudaginn eins og leikskólinn, bæjarskrifstofurnar, bókasafnið og sundlaugin.
Allar helstu upplýsingar um dagskrána 19. júní má sjá með því að smella hér.
Grindavíkurbær ásamt Kvenfélagi Grindavíkur hélt upp á þessi merku tímamót í Íslandssögunni með myndarlegri dagskrá í Menningarvikunni sem lesa má um hér.