Um Sjómannadagshelgina á Sjóaranum síkáta fór fram í Grindavík aflraunakeppnin "Sterkasti víkingur í heimi" en keppnin var hluti af keppnisröðinni "Gianst Live" og veittu þrjú efstu sætin í keppninni þátttökurétt í keppninni um sterkasta mann í heimi. Tólf keppendur voru mættir til leiks, þar af átta erlendir keppendur en meðal Íslendinga sem kepptu var Fjallið sjálft, Hafþór Júlíus Björnsson, sem gerði sér lítið fyrir og sigraði mótið og tryggði sér þ.a.l. þátttökurétt í keppninni um titilinn Sterkasti maður í heimi.
Keppninni var gerð rækilega skil í fjölmiðlum. Eurosport voru á staðnum með fjölda tökumanna og þá var fjallað um keppnina í íþróttafréttum Stöðvar 2 í gær þar sem að Valtýr Björn virkaði ansi lítill við hlið þessara trölla.