Það fór sennilega ekki framhjá neinum Íslendingi að Sjóarinn síkáti fór fram í Grindavík um helgina. Á bilinu 25-30 þúsund gestir lögðu leið sína til Grindavíkur um helgina og skartaði bærinn sínu fegursta í sólinni, vandlega skreyttur í hverfalitunum. Á föstudeginum fór litaskrúðgangan fram þar sem leiðin lá niður á bryggju þar sem Ingó og veðurguðirnir héldu uppi rífandi stemmingu með brekkusöng og bryggjuballi fram eftir nóttu. Bekkirnir voru þétt setnir og mikil og góð stemming myndaðist, bæði hjá þeim sem vögguðu sér á bekkjunum og hjá þeim sem tóku sporið við sviðið.
Sjóarinn síkáti hefur nú fest sig rækilega í sessi sem bæjarhátíð okkar Grindvíkinga og koma gestir til okkar hvaðan æfa af landinu til að taka þátt í gleðinni sem er nánast orðin stanslaus í fjóra daga. Tjaldstæðið var þétt setið og einnig var tjaldað á gamla rollutúninu. Fullt var útúr dyrum á veitingastöðum og hjá öðrum þjónustuaðilum en Grindvíkingar kippa sér nú lítið upp við smá vertíðarstemmingu í verslun og þjónustu og stóðu vaktina með bros á vör.
Á laugardeginum var mikið um að vera. Glæsileg dagskrá á hátíðarsviðinu við Kvikuna fyrir unga sem aldna, kraftakeppnin "Sterkasti víkingur í heimi" fór fram á bryggjunni og leiktæki frá Sprell vöktu mikla lukku. Um kvöldið voru svo glæsilegir tónleikar frá Skonrokk í íþróttahúsinu og böll og skemmtanir útum allan bæ. Sunnudagurinn er svo auðvitað stóri dagurinn, Sjómannadagurinn sjálfur, og var áfram nóg um að vera á bryggjunni. Hátíðardagskrá Sjómanna- og vélstjórafélagsins, koddaslagur, sædýrasýning, barnaskemmtun og margt fleira.
Skipuleggjendur hátíðarinnar vilja koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem að henni komu og tóku þátt. Við þökkum gestum kærlega fyrir komuna og hlökkum til að sjá ykkur að ári!
Hér að neðan fylgir lauflétt myndasyrpa frá hátíðinni. Ljósmyndari síðunnar var með myndavélina á lofti alla hátíðina og á Facebook síðu Grindavíkurbæjar má finna eins og 200 myndir í viðbót. Sjón er sögu ríkari.