Undanfarin ár hefur sú skemmtilega hefð myndast hér í bæ að skipta bænum upp í fjögur litahverfi, appelsínugult, rautt, grænt og blátt. Íbúar taka sig svo til að skreyta hús sín og götur í litum hverfanna og keppast margir við að slá nágrönnum sínum við í skreytingum enda verðlaun í boði fyrir bestu skreytingarnar.
Skreytingarnar í ár voru hver annarri glæsilegri og skemmtilegri. Margir lögðu greinilega umtalsverða vinnu og hugsun í sínar skreytingar og útkoman er oft á tíðum bæði frumleg og skemmtileg og setja þessar skreytingar mikinn svip á bæinn meðan á Sjóaranum síkáta stendur.
Veitt eru verðlaun fyrir bestu skreytingarnar. Í ár voru flokkarnir og verðlaunahafar eftirfarandi:
Góð samvinna í götu: Heiðarhraun 27-33 (Græna hverfið)
Best skreytta húsið: Ásvellir 7 (Rauða hverfið)
Skemmtilegasta skreytingin í garði: Dalbraut 3 (Bláa hverfið)
Frumlegasta skreytingin: Suðurhóp 3 (Appelsínugula hverfið)
Hér að neðan fylgja nokkrar myndir af þessum frábæru skreytingum. Á Facebook síðu bæjarins má sjá vænan slatta í viðbót. Smellið einu "læki" á hana ef þið eigið það eftir!