Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var bein útsending héðan frá Grindavík enda hafa skreytingar í bænum vakið athygli á landsvísu. Gunnar Atli Gunnarsson fréttamaður ræddi við þá Jón Berg Reynisson skreytingameistara og Hauk Einarsson fyrirliða appelsínugula hverfisins. Jón hefur unnið skreytingakeppni Sjóarans 5 ár í röð, geri aðrir betur! Innslagið úr sólinni í Grindavík má sjá á Vísi.is