Pílumót Sjóarans síkáta fyrir nemendur í 8. - 10. bekk var haldið í gær í Kvennó á vegum Pílufélags Grindavíkur. Sigurvegari gærkvöldsins var Dagur Ingi Hammer Gunnarsson. Í öðru sæti varð Símon Thasaphong, í þriðja sæti Pétur Bergvinsson og í fjórða sæti var Andri Hrafn Vilhelmsson.
Í kvöld kl. 19:00 verður Pílumót Sjóarans síkáta 2015 fyrir 15 ára og eldri. Mótið fer fram í Kvennó. Skráningu lýkur kl. 18:00.
Skráning fer fram í síma 865-2900 hjá Gunnari Má og á gunnar.gunnarsson@sjova.is.