Skráning stendur yfir í Götuhlaup Sjóarans síkáta

  • Fréttir
  • 2. júní 2015

Fimmtudaginn 4. júní kl. 18:00 verður Götuhlaup Sjóarans síkáta 2015 haldið í fyrsta sinn. Hlaupalengd er 5 km. Lagt verður af stað við aðalinngang íþróttamiðstöðvarinnar. Tímataka með flögu. Tölvupóstur með upplýsingum um tíma er sendur til keppenda eftir hlaup og birtur á www.hlaup.is. Keppt verður í flokkum karla og kvenna, 18 ára og eldri og undir 18 ára.   

Verðlaun: Vetrarkort í Bláa Lónið. 

Hlaupaleiðin: Byrjað við nýja íþróttamiðstöð, hlaupið fram hjá Króki og í Hópshverfi, niður á bryggju og upp Víkurbraut.

Hlaupaleiðina má sjá hér að ofan.

Skráning fer fram á www.hlaup.is. Skráning opin til kl. 22.00 miðvikudaginn 3. júní.

Allar nánari upplýsingar á www.hlaup.is

Þátttökugjald: 1.500 kr. 18 ára og eldri. Ókeypis fyrir yngri en 18 ára.

Grillveisla og ókeypis í sund eftir hlaupið (ef búið verður að opna sundlaugina. Alla vega verða sturturnar opnar). Einnig verður nýja líkamsræktarstöðin til sýnis.



Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir