Stjórn Reykjanes jarđvangs skorar á ráđherra ađ leiđrétta mistök

  • Fréttir
  • 29. maí 2015

Á fundi stjórnar Reykjanes jarðvangs sem að fram fór í dag var fjallað um úthlutun fjármuna til brýnna verkefna á ferðamannastöðum frá 26. maí sl. Gerir stjórn jarðvangsins alvarlega athugasemd við að engum fjármunum hafi veri úthlutað til ferðamannastaða á Reykjanesi og hljóti þar um mistök að vera að ræða. Eftirfarandi bókin var gerð á fundinum:

„Stjórn Reykjanes jarðvangs fagnar auknum framlögum til uppbyggingar ferðamannastaða á Íslandi. Stjórnin gerir hins vegar athugasemd við að aðeins sé úthlutað til ferðamannastaða í eigu og umsjón ríkisins. Sérstaka athygli vekur að engin framlög eru til verkefna á Reykjanesi en Reykjanesskagi er þriðji fjölsóttasti landshlutinn af ferðamönnum. Reykjanesfólkvangur er á rauðum lista Umhverfisstofnunar og landssvæðið að mestu í eigu ríkisins. Verkefni þaðan ættu því að uppfylla allar forsendur sem settar voru fyrir úthlutuninni. Stjórn Reykjanes jarðvangs ályktar að mistök hljóti að hafa átt sér stað við úthlutunina sem verði leiðrétt strax. Stjórnin skorar jafnframt á ráðherra ferðamála við að bæta úr þessu þegar í stað og býður fram aðstoð sína".

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál