Grindavíkurhöfn óskar eftir umsækjendum með ríka þjónustulund í starf hafnarvarðar og hafnsögumanns í fullt starf. Gerð er krafa um 2. stigs skipstjórnarnám. Hafnarvörður-hafnsögumaður starfar m.a. við hafnsögu og leiðsögn skipa, öryggiseftirlit við höfn og sinnir ýmsum þjónustuverkefnum hafnarvarða, s.s. að raða skipum í höfn, binda skip við bryggju og afgreiða vatn og rafmagn til skipa. Starfsmaðurinn verður staðgengill hafnarstjóra.
Menntun og reynsla
• Skipstjórnarréttindi 2. stig.
• Almenn færni í tölvum og geta til að setja sig inn í þau forrit sem notuð eru hjá Grindavíkurhöfn.
• Enskukunnátta til að sinna samskiptum við erlend skip og viðskiptavini
• Vélstjórnarréttindi eru kostur
• Löggilding vigtarmanns er kostur
Hæfnisþættir
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Geta til að sýna frumkvæði og rík skipulagshæfni
• Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli
Nánari upplýsingar veitir Sigurður A. Kristmundsson hafnarstjóri í síma 4268046/6607305 og netfang sigurdura@grindavik.is
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið.
Kjör verða í samræmi við kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag skipstjórnarmanna.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu berast á sigurdura@grindavik.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2015
Grindavíkurhöfn
Örugg höfn, góð þjónusta.