Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti þann 28. apríl 2015 að auglýsa tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
1. Miðbær Ránagata- Hafnargata. Auglýst er tillaga að deiliskipulagi fyrir hafnarsvæði Grindavíkur. Deiliskipulagssvæðið afmarkast af Mánagötu til norðurs og til suðurs af Grindavíkurhöfn. Austurmörk svæðisins eru meðfram Austurvegi og Hópsvegi og til vesturs af Verbraut 3, 3a og 3b. Deiliskipulagstillagan felur í sér að settur er rammi um hafnarstarfsemi á svæðinu, vöxt hennar og viðhald. Deiliskipulagið er unnið með það að leiðarljósi að bæta aðstöðu fyrir hafnarstarfsemi og tryggja örugg vinnusvæði. Er það einnig gert til að koma í veg fyrir árekstra á milli hafnarstarfsemi og ferðaþjónustu á svæðinu.
2. Fiskeldi á Stað. Auglýst er tillaga að deiliskipulagi ásamt umhverfisskýrslu skv. 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana fyrir fiskeldi á Stað.
Deiliskipulagstillagan er fyrir fiskeldi á hluta iðnaðarsvæðis merkt i7 í aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030. Íslandsbleikja áformar að halda áfram uppbyggingu á fiskeldi á umræddu svæði í þremur áföngum. Fyrirhuguð er stækkun á eldisrými Íslandsbleikju á svæðinu úr 25.000 rúmmetrum í 66.000 rúmmetra með fjölgun eldiskerja og framleiðsluaukningu á bleikju úr 1.600 tonn í um 3.000 tonn.Deiliskipulagið á við um það bil 95 hektara hluta af iðnaðarsvæðinu i7. Deiliskipulagsmörk fylgja lóðarmörkum Íslandsbleikju og fjörunni. Aðkoma að svæðinu er um veg númer 425 að norðan.
Deiliskipulagstillögurnar eru í samræmi við Aðalskipulag Grindavíkur 2010 - 2030.
Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu Grindavíkurbæjar Víkurbraut 62, frá kl: 9 -15 og á heimasíðu bæjarins. Tillögurnar eru í kynningu frá og með 20. maí 2015 til 15. júlí 2015.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og þurfa að berast frá og með 20 maí 2015 og eigi síðar en 15. júlí 2015 annað hvort á bæjarskrifstofu Grindavíkur, Víkurbraut 62 eða á netfangið: armann@grindavik.is.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Fh. Grindavíkurbæjar
Ármann Halldórsson
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
armann@grindavik.is
Fylgiskjöl:
Skýringaruppdráttur: Miðbæjarsvæði - hafnarsvæði - deiliskipulag
Auglýsing: Miðbæjarsvæði - hafnarsvæði - deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi: Fiskeldi á iðnaðarsvæði i7
Tillaga að deiliskipulagi: Fiskeldi á iðnaðarsvæði i7 (greinagerð og umhverfisskýrsla)