43. fundur Frístunda- og menningarnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 6. maí 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Atli Geir Júlíusson aðalmaður, Lovísa H Larsen formaður, Kristín María Birgisdóttir aðalmaður, Ágústa Inga Sigurgeirsdóttir aðalmaður, Sigríður Jónsdóttir aðalmaður, Þorsteinn Gunnarsson embættismaður og Gunnlaugur Jón Hreinsson áheyrnarfulltrúi UMFG.
Fundargerð ritaði: Þorsteinn Gunnarsson, Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs.
Dagskrá:
1. 1501149 - Bókasafn: Nýr forstöðumaður
Andrea Ævarsdóttir nýr forstöðumaður bókasafnsins kynnti sig og þau verkefni sem fram undan eru á bókasafninu. Nefndin býður Andreu velkomna til starfa.
2. 1501264 - Aðalstjórn UMFG: Samstarfssamningur 2015-2018
Nefndin samþykkir nýjan samstarfssamning Grindavíkurbæjar við aðalstjórn UMFG sem gildir til 31.12.2018 og leysir eldri samninga af hólmi. Búið er að sameina þrjá mismunandi samninga við UMFG í einn og bæta við afnotum af nýju íþróttamannvirki. Sviðsstjóri og fulltrúar frístunda- og menningarnefndar hafa fundað tvisvar með fulltrúum UMFG og viðræðurnar gengið vel og UMFG samþykkt samninginn fyrir sitt leiti. Nefndin fagnar þessum tímamótasamningi en í honum felst m.a. samstarf um:
1. Öflugt íþrótta-, forvarna- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6 -16 ára.
2. Öflugt afreksstarf fyrir 16 ára og eldri.
3. Styrkja starf aðalstjórnar UMFG m.a. með ráðningu íþróttafulltrúa í hlutastarf.
4. Efla félagsaðstöðu UMFG.
3. 1504044 - Umsókn í afrekssjóð: Hilmir Kristjánsson
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
4. 1504101 - Umsókn í afrekssjóð: Alexander Birgir Björnsson
Í samræmi við 4. grein vinnureglna íþrótta- og afrekssjóðs samþykkir nefndin umsóknina.
5. 1504102 - Umsókn í afrekssjóð: Viktoría Líf Steinþórsdóttir
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
6. 1505011 - Umsókn í afrekssjóð: Nökkvi Már Nökkvason
Nefndin samþykkir umsóknina í samræmi við vinnureglur íþrótta- og afrekssjóðs.
7. 1501010 - Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Sviðsstjóri fór yfir stöðuna varðandi tillögu nefndar um frekari uppbyggingu íþróttamannvirkja í Grindavík. Bæjarráð hefur vísað verkefninu til fjárhagsáætlunargerðar 2016-2019.
8. 1504103 - Minja- og sögufélag GRV: Sýning í Garðhúsi
Minja- og sögufélagið óskar eftir því að taka að sér umsjón á Gestahús þar sem síðast var verslunin Blómakot, til að setja upp sýningu á gömlum munum úr Grindavík en félagið á um 1200 slíka. Nefndin tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu í bæjarráði.
9. 1504069 - Rannsóknir og greining: Hagir og líðan ungs fólks í GRV 2015
Farið yfir niðurstöður kannanna Rannsóknar og Greiningu fyrir árið 2015 um vímuefnanotkun nemenda í 8. - 10. bekk. Ítarlegir spurningalistar eru lagðir fyrir nemendur. Svarhlutfall nemenda var 84%. Frístunda- og menningarnefnd fagnar þeim árangri sem er að nást í forvarnarmálum gagnvart vímuefnaneyslu nemenda en hvetur foreldra og forráðamenn til að halda vöku sinni í þessum efnum og styðja vel við bakið á ungmennum sínum í þá veru að koma í veg fyrir eða seinka neyslu eins og hægt er.
10. 1501011 - Frístundastarf Grindavíkurbæjar: Úttekt og stefnumótun
Sviðsstjóri lagði fram minnisblað um stefnumótun frístundastarfs á vegum Grindavíkurbæjar 2015-2020 sem unnið hefur verið að síðastliðna 12 mánuði. Nefndin er ánægð með samráðsferlið og samþykkir stefnumótunina eins og hún liggur fyrir og vísar til bæjarráðs og bæjarstjórnar til staðfestingar.
11. 1504089 - Ungmennaráð: Málefni ungmenna í Grindavík
Sviðsstjóri kynnti framgang verkefna Ungmennaráðs sem ákveðið var að veita fjármagni til á 40 ára afmælisfundi bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar.
12. 1504028 - Styrkbeiðni: Halla Vigdís Jóhannsdóttir vegna USAR 2015
Málinu frestað.
13. 1504004 - Útistofa: Ósk um afnot
Ekki er hægt að verða við erindinu þar sem búið er að ráðstafa útistofunum í sumar.
14. 1501114 - Fundargerðir Ungmennaráðs
Fundargerðin lögð fram.
15. 1501168 - Austurvegur 1: umsókn um byggingarleyfi áfangi 2
Kynnt útboðsgögn á útisvæði við nýja íþróttmannvirkið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.