1380. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 5. maí 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson formaður, Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm aðalmaður, Kristín María Birgisdóttir varaformaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1503033 - Ný staða sérkennslustjóra í leikskólum
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir tillögu fræðslunefndar um að leikskólastjórum verði veitt heimild til að ráða í nýja stöðu sérkennslustjóra innan leikskólanna frá og með 1. janúar 2016. Á sama tíma verður lögð niður 62,5% staða starfsmanns sem sinnir þjálfun barna með vægari þroskafrávik.
Áætlaður árlegur kostnaðarauki vegna tillögunnar er um 1.000.000 kr. á hvorn leikskóla, frá og með árinu 2016.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar til fjárhagsáætlunar fyrir árin 2016-2019.
2. 1504015 - Hagstofa Íslands: Félagsþjónustu skýrsla 2014
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kynnti Árskýrslu félagsþjónustu (Hagstofuskýrsla) vegna ársins 2014.
Í skýrslunni eru tölfræðilegar upplýsingar um daggæslu barna í heimahúsi, félagslega heimaþjónustu og fjárhagsaðstoð.
Félagsmálanefnd hefur lýst áhyggjum sínum yfir því hversu mikill fjöldi ungs fólks var á fjárhagsaðstoð sl. ár, jafnvel í marga mánuði samfellt. Nefndin telur brýnt að ungu fólki á fjárhagsaðstoð í sveitarfélaginu standi til boða úrræði sem efla virkni þeirra og auka valdeflingu þess. Í því sambandi mætti líta til þess að veitt yrði uppbót á framfærslu út frá þátttöku í virkniverkefnum eða beita skilyrðingum þegar það ætti við. Nefndin hefur falið starfsfólki félagsþjónstu að leggja fram tillögur um breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð til að mæta framangreindum sjónarmiðum. Tillögurnar skulu liggja fyrir eigi síðar en 1. september nk.
Bæjarráð tekur undir tillögu nefndarinnar.
3. 1503114 - Leikskólapúlsinn 2014 - 2015
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir niðurstöðum viðhorfskannana Skólapúlsins gagnvart starfsfólki beggja leikskóla. Kannanirnar voru lagðir fyrir í mars sl.
Fræðslunefnd hefur hvatt skólastjóra beggja leikskóla til að rýna vel í niðurstöðurnar, jafnt veikleika og styrkleika, og bregðast við með umbótaáætlun sem verður hluti af starfsáætlun næsta skólaárs.
Bæjarráð tekur undir hvatningu nefndarinnar.
4. 1503106 - Skólapúlsinn 2014 - 2015
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri gerðu grein fyrir niðurstöðum viðhorfskönnunar foreldra í Skólapúlsinum frá því í mars sl.
Í könnuninni eru mæld viðhorf foreldra til náms og kennslu, velferðar nemenda, aðstöðu og þjónustu, foreldrasamstarfs og heimastuðnings.
Niðurstöður könnunarinnar gefa tilefni til að gerð verði umbótaáætlun sem liggja þarf fyrir í starfsáætlun skólans næsta skólaárs. Fræðsluefnd leggur ríka áherslu á aðkoma foreldra að þeirri umbótaáætlun verði tryggð.
Bæjarráð tekur undir áherslu fræðslunefndar.
5. 1501010 - Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Lagt fram yfirlit yfir þann búnað sem er innifalinn í kostnaðaráætlun sem lögð var fram á fundi bæjarráðs í mars.
Bæjarráð vísar verkefninu til fjárhagsáætlunargerðar 2016-2019.
6. 1504089 - Ungmennaráð: Málefni ungmenna í Grindavík
Áskoranir Ungmennaráðs til bæjarstjórnar teknar til umræðu, en þær eru:
Að samgöngur milli Grindavíkur og Reykjanesbæjar fyrir nemendur í Fjölbrautaskóla Suðurnesja verði efldar.
Að næsta vetur verði opnir tímar í íþróttahúsi og Hópi fyrir þá sem vilja koma og leika sér.
Að ljósin á körfuboltavellinum við Hópsskóla verði logandi til kl. 22:00 á kvöldin, eins og á sparkvellinum við Ásabrautina.
Bæjarráð tekur jákvætt í áskoranir Ungmennaráðs og felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga áður en ákvarðanir verða teknar.
7. 1504115 - Fulltrúaráð EBÍ: Kjör fulltrúa
Bæjarráð leggur til að bæjarstjóri verði fulltrúi Grindavíkurbæjar í fulltrúaráði EBÍ og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs til vara.
8. 1503009 - Vindorkugarður á Reykjanesi: viljayfirlýsing
Ályktun Umhverfis- og ferðamálanefnar lögð fram, en nefndinni hugnast ekki að byggður verði vindmyllugarður í landi Grindavíkur.
Í ljósi þess að skiptar skoðanir eru um uppbyggingu vindmyllugarðs í Grindavík, býður bæjarráð fulltrúum fyrirtækisins að halda opinn kynningarfund og kynna verkefnið fyrir íbúum Grindavíkur áður en málið verður unnið lengra.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00.