Undirbúningur fyrir Sjóarann síkáta er á fullu skriði. Þjónustuaðilar og allir þeir sem vilja koma sinni dagskrá í opinbera dagskrá Sjóarans síkáta, sem dreifð verður í 30 þúsund eintökum á suðvestur horninu, þurfa að skila henni í síðasta lagi 10. maí n.k. Verð 20.000 kr. (lógó innifalið). Einnig er hægt er að kaupa heilsíðu auglýsingu í dagskrána (stærð blaðs A4), verð 50.000 kr. Skilafrestur er einnig 10. maí.
Tilkynningar sendist á siggeir@grindavik.is
Allar nánari upplýsingar á www.sjoarinnsikati.is og www.grindavik.is