Um leið og sólin lætur sjá sig draga grindvískir krakkar hjólin fram úr geymslum og bílskúrum og hjóla í skólann í umvörpum. Það hefur ekki beinlínis viðrað vel til hjólreiða þetta vorið og jafnvel mætti færa fyrir því rök að það hafi heldur ekki gert í dag, bæði kalt úti og léttur gustur. Krakkarnir í Hópsskóla létu það þó ekki stoppa sig enda hraust og dugleg og drifu sig greinilega mörg á hjólum í skólann í morgun eins og sést á meðfylgjandi mynd. Hjólastandurinn nánast fullur!
Starfsmenn við Víkurbraut 62 fjölmenntu einnig á reiðfákum sínum til vinnu í morgun en jafnmörg hjól hafa ekki sést fyrir utan húsið síðan á síðasta ári.