4. fundur skipulagsnefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, mánudaginn 20. apríl 2015 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm varamaður, Marta Sigurðardóttir aðalmaður, Þórir Sigfússon aðalmaður, Ólafur Már Guðmundsson varamaður og Sigurður Guðjón Gíslason formaður.
Fundargerð ritaði: Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Dagskrá:
1. 1501153 - Breyting á deiliskipulagi hesthúsabyggðar, fráveita í rotþró og stækkun byggingarreitar við reiðhöll
Tekið fyrir aftur eftir grenndarkynningu. Tvær athugasemdir bárust sem leiddu í ljós ósamræmi í lóðarblöðum fyrir lóðir Hópsheiði 8,10 og 12. í framhaldi hefur uppdráttum verið breytt til samræmis þess sem er þinglýst á nr. 8 . Sviðsstjóra falið að láta grenndarkynna uppfærð gögn skv 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2. 1503099 - Breyting á deiliskipulagi: Svartsengi
Tekið fyrir eftir grenndarkynningu. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytinguna og fela Sviðsstjóra að senda Skipulagsstofnun samþykkta deiliskipulagsbreytingu og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
3. 1503027 - Umsókn um framkvæmdaleyfi: endurnýjun hitaveitulagnar við Víkurbraut
Erindi frá HS veitum hf. kt. 431208-0590. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu 290 mm DN300/450 hitaveitulögn meðfram Víkurbraut vestanverðri frá Nesvegi að Hópsbraut og tengingu inn á tvo hitaveitubrunna. Einnig er óskað eftir að fá að loka göngustíg meðfram fyrirhugaðri lögn á hluta verktímans sem er áætlaður frá 18. Júní til 18. Júlí. Erindinu fylgja teikningar merktar 101-104 unnar af Verkís verkfræðistofu dags. 16.02.2015. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að framkvæmdaleyfið verði samþykkt.
4. 1501021 - Deiliskipulag miðbæjar - Ránargata og Hafnargata.frh.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagið verði auglýst með áorðnum breytingum skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5. 1502001 - Skipulagsnefnd: Samþykkt
Málinu frestað.
6. 1501154 - Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
Málinu frestað.
7. 1503105 - Umsókn um byggingarleyfi: Verbraut 3
Erindi frá Hópsnes ehf. kt. 470265-0199. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir u.þ.b. 600 m2 geymsluhúsnæði við óskráða eignarlóð við Verbraut. Erindinu fylgja bygginganefndarteikningar unnar af Guðna Sigurbirni Sigurðssyni kt. 250582-4479 dagsettar 11.3.2015, útgáfa B. Einnig fylgir umsókn um stækkun lóðar við Verbraut 3 og eignarheimildir á 1.025 m2 spildu undir fyrirhugað mannvirki. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að fyrirhuguð framkvæmd verði grenndarkynnt fyrir eigendum Víkurbrautar 1 og 3 og Verbraut 1, 3a og 3b skv. 44 gr. skipulagslaga nr.123/2010.
8. 1503164 - Iðnaðarsvæði i5: Nafnagiftir.
Skipulagsnefnd felur sviðsstjóra að nefna fyrstu götu innan reits nr. 1 í rammaskipulagi iðnaðarsvæðis i5 Hraunsvík. Nefndin leggur til að aðrar götur innan iðnaðarsvæðis i5 muni heita eftir víkum í strandlengju Grindavíkur. Gata meðfram affallslögn frá Svartsengi skal heita Víkurgata. Næstu götur skulu heita Krossavík, Sandvík, Mölvík, Katrínarvík og Hvalvík.
9. 1504072 - Breyting á aðalskipulagi:: Syðsti hluti Víkurbrautar.
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu aðalskipulags Grindavíkurbæjar 2010 -2030 skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin á við syðsta hluta Víkurbrautar sem liggur niður að Sjávarbraut. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt með áorðnum breytingum og auglýsi ákvörðun sýna skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:31.