1378. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 14. apríl 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson formaður, Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm aðalmaður, Kristín María Birgisdóttir varaformaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1503035 - Húsatóftavöllur: stuðningur við uppbyggingu golfvallar
Bæjarstjóri kynnti tillögu að viljayfirlýsingu milli Grindavíkurbæjar, Bláa Lónsins og Golfklúbbs Grindavíkur um stuðning við uppbyggingu golfvallar að Húsatóftum.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að undirrita hana og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
2. 1501010 - Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti drög að fjögurra ára fjárhagsáætlun 2015-2018 þar sem gert er ráð fyrir byggingu nýs íþróttahúss.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um kostnað við nauðsynlegan búnað fyrir nýtt íþróttahús.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:25.