Grindvíkingar eru hvattir til þess að tryggja sér miða á viðburðinn af Fingrum fram á sunnudaginn í sal tónlistarskólans í Iðnu. Miðaverð í forsölu: 2.000 kr. Miðana er hægt að kaupa í Aðal-Braut (ekki tekið við greiðslukortum). Miðaverð við hurð: 2.500 kr. Alls eru 100 miðar til sölu og hefur miðasalan farið vel af stað. Tryggið ykkur því miða í tíma.
Sunnudaginn 22. mars kl. 20:00 Tónleikasalur tónlistarskólans; Spjalltónleikaröðin „Af fingrum fram" hefur notið mikilla vinsælda síðustu árin í Salnum, Kópavogi. Gestgjafinn; Jón Ólafsson, hefur fengið til sín þekktustu tónlistarmenn landsins og farið með þeim í gegnum ferilinn auk þess að heyra sögurnar á bak við lögin. Gunnar Þórðarson þarf vart að kynna fyrir Íslendingum en hann fagnaði á dögunum 70 ára afmæli.
Gunnar er maðurinn á bak við helstu dægurperlur Íslands,
stofnaði bæði Hljóma og Trúbrot og hefur vísast frá nógu að segja.