Í kvöld klukkan 20:30 eru á dagskrá glæsilegir sænsk-íslenskir stórtónleikar. Sænski gítarleikarinn Peter O Ekberg heldur tónleikana ásamt sænsku söngkonunni Alicia Carlestam. Þeim til aðstoðar verða bassaleikarinn Ingi Björn Ingason, píanóleikarinn Pálmi Sigurhjartarson og trommuleikarinn og bæjarlistamaðurinn Halldór Lárusson.
Peter O Ekberg hefur unnið með ótal listamönnum í Svíþjóð og Bandaríkjunum og starfaði um árabil hjá Warner útgáfunni sem listamaður og upptökustjóri. Hann er eftirsóttur gítarleikari sem hefur m.a. talsvert í blústónlist. Söngkonan Alicia Carlestam er 23ja ára og er nemandi við tónlitarháskólann í Piteå en hún leikur einnig á munnhörpu. Hún þykir ein efnilegasta söngkona Svíþjóðar. Ókeypis aðgangur.