Fróđleg og skemmtileg dagskrá í tilefni merkilegra tímamóta

  • Fréttir
  • 15. mars 2015

Í dag var dagskrá í tilefni þess að 100 ár eru frá því konur fengu kosningarétt á Íslandi. Lovísa H. Larsen formaður frístunda- og menningarnefndar hélt utan um dagskrána og kynnti. Oddný Harðardóttir þingmaður og fyrsta konan til að gegna embætti fjármálaráðherra, ávarpaði fundinn sem fram fór í nýjum og glæsilegum samkomusal í nýja íþróttamannvirkinu við Austurveg. 

Þá var rakin rúmlega 90 ára saga Kvenfélags Grindavíkur en bæði núverandi formaður ásamt fyrrum formönnum fóru yfir söguna í máli og myndum og var það afar fróðlegt en kvenfélagskonur hafa verið hornsteinn menningar í Grindavík í tæpa öld.

Perlur festarinnar eru margvíslegar var yfirskrift ávarps Birnu Þórðardóttur en í hartnær fjóra áratugi hefur hún Birna Þórðardóttir verið eins konar persónugervingur pólitískra  mótmæla gegn misrétti og stríðsrekstri. Var fyrirlestur hennar ákaflega skemmtilegur.

Þá voru veggspjöld á staðnum þar sem fjallað var um kvenréttindabaráttu á Íslandi síðustu öldina. 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir