Uppskriftakeppni um besta saltfiskréttinn í Grindavík 2015. Sérstök dómnefnd undir stjórn Láka á Salthúsinu velur þrjár bestu uppskriftirnar. Höfundar þeirra verða boðaðir á Salthúsið þar sem þeir, eða fulltrúar þeirra, elda saltfiskinn fyrir dómnefndina sem velur að lokum BESTA SALTFISKRÉTTINN eftir smökkunina.
Hægt er að senda uppskriftir í tölvupósti til salthusid@salthusid.is í síðasta lagi 23. mars. Verðlaun: 1. verðlaun eru kr. 30.000, 2. verðlaun eru kr. 20.000, 3. verðlaun Gjafabréf á Salthúsinu að andvirði kr. 15.000. Vinningsuppskriftir verða sýnilegar á vefsíðum Salthússins, www.salthusid.is, Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is og Kvikunnar, www.grindavik.is/kvikan.
Í Menningarviku mun Salthúsið í Grindavík bjóða upp á saltfiskrétti.