Í ár eru liðin 100 ár frá því konur á Íslandi fengu kosningarétt. Ný stjórnarskrá með ákvæði um að konur og vinnumenn eldri en 40 ára fengju kosningarétt og kjörgengi til þingkosninga litu dagsins ljós árið 1915. Átti að lækka aldurstakmarkið í skrefum um eitt ár á ári hverju þar til það væri komið niður í 25 ár til jafns við karlmenn. Það takmark hefði náðst árið 1931 að óbreyttri stjórnarskrá. Frá þessu var fallið árið 1920 og kosningaréttur karla og kvenna gerður jafn. Þessa merka viðburðar í Íslandssögunni verður minnst í Menningarvikunni laugardaginn 14. mars kl. 11:00 með veglegri dagskrá sem fer fram í samkomusal nýja íþróttamannvirkisins við Austurveg. Súpa og brauð verður í boði fyrir gesti.
Saga Kvenfélags Grindavíkur verður rakin. Núverandi formaður ásamt fyrrum formönnum fara yfir 90 ára sögu félagsins í máli og myndum.
Hljómsveitin Eva stígur á stokk. Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Eir Zophoníasdóttir flytja frumsamin lög sem eru einlæg og melódísk og kitla á sama tíma hláturtaugar og tárakirtla þeirra sem á hlýða.
Perlur festarinnar eru margvíslegar er yfirskrift á ávarpi Birnu Þórðardóttur á þessum merku tímamótum. Í fjóra áratugi hefur Birna Þórðardóttir verið eins konar persónugervingur pólitískra mótmæla gegn misrétti og stríðsrekstri. Enn tekur hún virkan þátt í slíkum aðgerðum þegar við á. Jafnvel fólk sem ekki er sammála skoðunum hennar eða baráttuaðferðum getur varla annað en borið virðingu fyrir henni. Birna er frábær fyrirlesari með húmor þó undirtónninn sé alvarlegur.