Harpa danskennari fćr Menningarverđlaun Grindavíkurbćjar 2015

  • Fréttir
  • 9. mars 2015

Harpa Pálsdóttir danskennari fær Mennningarverðlaun Grindavíkurbæjar 2015 við hátíðarlega athöfn í Grindavíkurkirkju kl. 17:00 laugardaginn 14. mars nk. við setningu Menningarviku. Þetta var einróma samþykkt í frístunda- og menningarnefnd en Harpa hefur með þrautseigju staðið fyrir danskennslu hér í Grindavík hartnær fjóra áratugi. 

Menningarverðlaunin sem Harpa fær, eru veitt einstaklingi, stofnun eða samtökum sem viðurkenning fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar. Hlutverk verðlaunanna er einnig að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í sveitarfélaginu.

Harpa Pálsdóttir hefur kennt Grindvíkingum að dansa í rúm 40 ár. Harpa er ættuð frá Siglufirði en uppalinn í Reykjavík í átta systkina hópi. Það má segja að dansinn sé eitthvað sem fjölskyldan hefur í blóðinu en allar þrjár systur Hörpu eru menntaðar danskennarar. Sjálf útskrifaðist Harpa úr Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar, hálfbróður síns, árið 1974 og hefur kennt dans um allt land allar götur síðan. 

Þrátt fyrir að búa í Reykjavík sóttist Harpa eftir því að kenna úti á landi og kenndi ekki bara hér í Grindavík heldur einnig á Akureyri, Vestmannaeyjum og víðar. 1982 flutti hún svo til Grindavíkur. Dætur Hörpu hafa svo fengið dansinn með móðurmjólkinni og bæði kennt og keppt í dansi og í dag er elsta dóttirin, Erla Rut, að kenna með móður sinni. 

En hefur eitthvað hefði breyst í dansinum á þessum rúmu 40 árum?
„Grunnurinn er náttúrulega alltaf sá sami en maður er alltaf að læra og kenna ný spor og lotur. Maður lærir nánast eitthvað nýtt á hverjum degi. Ég hef verið dugleg við að afla mér þekkingar og kynna mér nýjungar í faginu. Heiðar var duglegur við að senda okkur út að læra, bæði til Englands og Þýskalands og einnig Danmerkur. Þá hef ég einnig farið þrisvar til Kúbu og lært salsa í Listaháskólanum í Havana. Svo koma auðvitað alltaf allskonar tískudansar og ég hef kennt þetta allt saman, diskódansa og fleira, en reyndar aldrei break dans. Ég hef fengið aðra kennara í það."

- Hvað er svo framundan, þú ert ekkert kominn með leið á dansinum eftir öll þessi ár?
„Alls ekki. Ég hef stundum sagt að ég verði seint rík á þessu starfi en það er engu að síður afar gefandi. Ég hlakka til að mæta í vinnuna á hverjum degi. Þetta er æðislegt starf og það heldur mér ungri. Ég mun örugglega halda áfram þangað til að ég verð komin með göngugrind!" sagði Harpa við Járngerði að lokum.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir