Forsala hefst í dag á Af fingrum fram - Jón Ólafsson og Gunnar Ţórđarson

  • Fréttir
  • 3. mars 2015

Sunnudaginn 22. mars kl. 20:00 verður spjalltónleikaröðin Af fingrum fram í sal tónlistarskólans í Grindavík en þetta er hluti af Menningarvikunni. Hún hefur notið mikilla vinsælda síðustu árin í Salnum, Kópavogi. Gestgjafinn, Jón Ólafsson, hefur fengið til sín þekktustu tónlistarmenn landsins og farið með þeim í gegnum ferilinn auk þess að heyra sögurnar á bak við lögin. Gunnar Þórðarson þarf vart að kynna fyrir Íslendingum en hann fagnaði á dögunum 70 ára afmæli.   

Gunnar er maðurinn á bak við helstu dægurperlur Íslands, stofnaði bæði Hljóma og Trúbrot og hefur vísast frá nógu að segja.

Þetta er því einstakt tækifæri fyrir Grindvíkinga að hlusta á þessu tvo frábæru tónlistarmenn.


Miðaverð í forsölu: 2.000 kr. Miðana er hægt að kaupa í Aðal-braut (ekki tekið við greiðslukortum).
Miðaverð við hurð: 2.500 kr.

Forsalan hefst í Aðal-braut í dag kl. 15:00. Aðeins 100 miðar til sölu.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir