Menningarvika Grindavíkur verður haldin 14.-22. mars n.k. og er nú haldin í sjöunda sinn. Dagskráin er að vanda fjölbreytt og skemmtileg þar sem vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi. Meðal þess sem búið er að bóka í Menningarviku er;
Tónleikar Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, með afmælisbarninu Gunnari Þórðarsyni. Sameiginlegir tónleikar með listafólki frá Grindavík og vinabænum Piteå í Svíþjóð. Fjölmenningarhátíð í Salthúsinu og bókasafninu. Færeyjakvöld Norræna félagsins í Grindavík. Traktors- og bílasýning Hermanns í Stakkavík. Málverkasýningar Helgu Kristjánsdóttur og Pálmars Guðmundssonar. Ljósmyndasýning Tinnu Hallsdóttur. Myndasýningar, gönguferðir o.fl á vegum Minja- og sögufélagsins. Glæsileg dagskrá í tilefni þess að konur fengu kosningarétt fyrir 100 árum. Nýtt íþróttamannvirki til sýnis. Tónleikar Dagbjarts Willardssonar. Dagskrá Norræna félagsins. Þá má nefna léttmessu, pottaspjall bæjarfulltrúa, námskeið í að skapa tónlist í snjalltækjum, matreiðslunámskeið, Siggi stormur kemur í heimsókn, fréttaskot úr fortíðinni, handavinnusýning, árshátíð bæjarins, kútmagakvöld Lions, konukvöld, blústónleikar og margt fleira sem oft langt mál yrði að telja upp hér en verður kynnt nánar á næstunni.
Þá verða stofnanir í Iðu, þ.e. grunnskólinn, bókasafnið, tónlistarskólinn og Þruman með opið hús og öfluga dagskrá og þá kemur Lína langsokkur í heimsókn á yngsta stigið í grunnskólann og í leikskólana.
Formleg setning hátíðarinnar verður í Grindavíkurkirkju laugardaginn 14. mars kl. 17:00. Eftir setninguna er gestum boðið í safnaðarheimilið í fjölmenningarlegt veisluborð.
Að þessu sinni verður lögð áherslu á fjölmenningu. Meðal annars var sett á laggirnar fjölmenningarráð sem skipuleggur tvo skemmtilega viðburði, ekki síst fyrir Grindvíkinga til þess að kynna sér menningu fjögurra landa að þessu sinni; Póllands, Tælands, Filippseyja og Serbíu. Þá verður kynning á rithöfundum á bókasafninu frá þessum löndum.
Sem fyrr er uppistaðan í Menningarvikunni framlag heimafólks auk þess sem landsþekkt tónlistarfólk, listafólk og skemmtikraftar heimsækja Grindavík. Menningarvikunni hefur verið vel tekið undanfarin ár. Allir leggjast á eitt við að bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
Grindvíkingar um land allt og ekki síst Suðurnesjabúar eru hvattir til þess að nýta sér tækifærið og fjölmenna á menningarviðburðina. Menningarvikan er skipulögð af Þorsteini Gunnarssyni, sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs í samvinnu við frístunda- og menningarnefnd.