Óveđur í ađsigi: Tilkynning frá Lögreglunni á Suđurnesjum.

  • Fréttir
  • 25. febrúar 2015

Þessa stundina er afar slæmt veður hér á svæðinu og miðað við veðurspá mun veðrið versna eftir því sem líður á daginn. Fólk er beðið um að huga að lausamunum í kringum hús sín og huga að ferðum barna sinna í dag. Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu og leiðbeiningar sem við birtum hér að neðan:

"Enn blæs Kári og nú ætlar hann víst að gera það hraustlega.

Fólk er beðið um að gæta að lausamunum í og við hús sín og ganga þannig frá hlutum að þeir verði ekki ykkur né öðrum að tjóni.

Þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á Suðurnesjum fylgjast Lögreglan og Almannavarnir gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf.

Mikilvægt er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni.
Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í og úr skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll.

Við slíkar aðstæður eru skólarnir opnir og þar er öruggt skjól fyrir börnin.
Ef þið þurfið aðstoð vegan óverðsins þá hringið í 1-1-2."

Mynd af Facebook síðu björgunarsveitarinnar Þorbjarnar: „Myndin er tekin í útkalli á Grindavíkurvegi sunnudaginn 22. febrúar 2015. Þarna er verið að aðstoða vegfarendur og þar á meðal vörubíl sem hafði farið út af veginum.“


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir