36. fundur Fræðslunefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, miðvikudaginn 18. febrúar 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Þórunn Svava Róbertsdóttir formaður, Jóhanna Sævarsdóttir, varamaður, Ámundínus Örn Öfjörð aðalmaður, Ómar Örn Sævarsson aðalmaður, Guðmundur Grétar Karlsson aðalmaður, Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs, Fríða Egilsdóttir leikskólastjóri, Inga Þórðardóttir, Halldóra Kristín Magnúsdóttir, Hulda Jóhannsdóttir og Valdís Inga Kristinsdóttir og Íris Elfa Aðalgeirsdóttir.
Fundargerð ritaði: Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.
Dagskrá:
1. 1502090 - Móttökuáætlanir vegna tvítyngdra barna í skólum
Nefndin fjallar um fjölmenningu í skólum Grindavíkurbæjar. Fyrir liggur að u.þ.b. 10% af íbúum bæjarins eru með erlendan ríkisborgararétt. Í þessu sambandi var m.a. horft til stefnu Dalvíkurbyggðar um fjölmenningu í skólum. Fyrir liggur að í báðum leikskólum eru til verkferlar um móttöku barna af erlendum uppruna sem koma til með að verða hluti af skólanámskrám skólanna. Í Grunnskóla Grindavíkur eru jafnframt verkferlar um móttöku nemenda af erlendum uppruna og verða þeir hluti af námskrá skólans.
Nefndin beinir því til bæjarráðs að sett verði fram heildstæð fjölmenningarstefna fyrir bæjarfélagið.
2. 1501109 - Tónlistarskóli: Yfirferð reksturs
Minnisblað um rekstur Tónlistarskólans er lagt fram til umfjöllunar í nefndinni. Nefndin telur brýnt að leitað verði allra leiða til að fjölga nemendum í tónlistarskólanum og leggur til við bæjarráð að mótuð verði framtíðarsýn fyrir skólann.
3. 1501052 - Ráðning leikskólastjóra
Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs kynnir hæfnismat á umsækjendum um stöðu skólastjóra við Leikskólann Laut. Staðan var auglýst hinn 17. janúar sl. og var umsóknarfrestur til 4. febrúar sl. Tveir umsækjendur sóttu um stöðuna. Samkvæmt samþykktum Grindavíkurbæjar um stjórn og fundarsköp ræður sviðsstjóri skólastjóra að höfðu samráði við fræðslunefnd.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:30.