Fyrsta auglýsta sögustund vetarins var laugardaginn 14.febrúar s.l. kl.11.
„Söguteppið" var tilbúið á gólfinu og þægilegir púðar og sessur til að sitja á. Nokkrir foreldrar komu með börnum sínum og allir hlustuðu á Viktoríu lesa af mikilli list. Mörgum fannst svo gott að hafa hin ýmsu loðdýr, sem eiga heima á bókasafninu, hjá sér á meðan hlustað var á söguna. Þegar sögustund lauk fengu börnin tíma til að skoða fallegar og skemmtilegar bækur með pabba og mömmu.
Það er ekkert eins gaman og að sjá lítil börn finna töfrana sem fylgja svona upplestri úr fallega myndskreyttri bók, þegar þess er vel gætt að allir fái að sjá myndirnar líka.
Við hvetjum foreldra með ung börn, sérstaklega, til að koma og nýta sér þá góðu aðstöðu sem bókasafnið býður uppá. Opið er alla virka daga frá 10-18 og laugardaga frá 10-14. Allir velkomnir!