Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) óskar eftir að ráða móttökuritara í afleysingarstarf. Um er að ræða tilfallandi afleysingar í vetur og sumarafleysingu
Helstu verkefni og ábyrgð
Móttaka skjólstæðinga sem koma á Heilsugæsluna í Grindavík. Afgreiðsla gegnum síma og tímabókanir.
Hæfniskröfur
Verið er að leita að einstakling sem er jákvæður, með góða þjónustulund og framkomu. Krafist er góðrar íslensku og enskukunnáttu.
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða tilfallandi afleysingarstarf og sumarafleysingu. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsóknir sem greina frá menntun, fyrri störfum og meðmælendum skulu berast til Laufeyjar Birgisdóttur yfirhjúkrunarfræðings, Víkurbraut 62, 240 Grindavík eða með tölvupósti á netfangið laufey@hss.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2015.
Nánari upplýsingar veitir
Laufey Birgisdóttir, yfirhjúkrunarfræðingur á heilsugæslustöðinni í Grindavík, í síma 422-0764 / 860-0193 eða í gegnum netfangið laufey@hss.is