449. fundur bæjarstjórnar Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 27. janúar 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson bæjarfulltrúi, Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm bæjarfulltrúi, Guðmundur L. Pálsson bæjarfulltrúi, Kristín María Birgisdóttir bæjarfulltrúi, Marta Sigurðardóttir bæjarfulltrúi, Jóna Rut Jónsdóttir bæjarfulltrúi, Páll Jóhann Pálsson varamaður, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Jón Þórisson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá:
1. 1501253 - Íbúaþróun: 3000. Grindvíkingurinn
Sigrún Ísdal Guðmundsdóttir og Steinar Nói Kjartansson komu á fund bæjarstjórnar til að taka við heillaóskum og viðurkenningum fyrir hönd sona sinna sem eru Grindvíkingar númer 3.000 og 3.001.
2. 1501153 - Breyting á deiliskipulagi hesthúsabyggðar, fráveita í rotþró og stækkun byggingarreitar við reiðhöll.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, bæjarstjóri og Páll Jóhann
Skipulagsnefnd leggur til að samþykkt verði óveruleg breyting á deiliskipulagi hesthúsabyggðar við Hópsheiði. Breytingarnar eru m.a. að byggingarreitur fyrir reiðhöll stækkar um 12m til vesturs og texti um holræsa- og lagnakerfi breytist á þann hátt að í stað þess að byggð á deiliskipulagssvæðinu tengist holræsakerfi bæjarins verður hver og einn að vera með rotþró innan lóðar.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram skv. 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3. 1501092 - Deiliskipulag, Eldvörp rannsóknarborholur. frh
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann, Guðmundur, Bryndís og Marta
Bæjarstjórn samþykkti á 416. fundi sínum þann 29.2.2012 að heimila HS Orku að vinna að deiliskipulagi Eldvarpa fyrir rannsóknarborholur, skv. 41. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd- og umhverfisnefnd auglýsti skipulags- og matslýsingu samkvæmt afgreiðslu á 10. fundi sínum þann 12. mars 2012.
Fyrir liggja drög að deiliskipulagstillögu frá HS Orku.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að drögin verði kynnt fyrir íbúum og hagsmunaaðilum í samræmi við 40. gr. skipulagslaga. Drögin verði aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu nefndarinnar en leggur áherslu á að framkvæmdirnar valdi sem minnstu raski og að mannvirkin falli sem best að umhverfinu.
4. 1501010 - Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og sviðsstjóri skipulags- og umhverfissvið sátu fundinn undir þessum lið.
Til máls tóku: Kristín María, Bryndís, Páll Jóhann, Hjálmar, Guðmundur, Marta og Jóna Rut.
Tillaga
Lagt er til að fresta afgreiðslu málsins og vísa því til bæjarráðs til frekari vinnslu. Bæjarráð mun endurskilgreina verkefnið og vísa því til nefndar um byggingu íþróttamannvirkja.
Samþykkt með 6 atkvæðum, Guðmundur situr hjá.
5. 1501221 - Þjónustukönnun sveitarfélaga 2014: Grindavíkurbær
Bæjarstjóri kynnti niðurstöður þjónustukönnunar Capacent meðal 19 sveitarfélaga á árinu 2014.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann, Bryndís, Marta, Hjálmar, Guðmundur og Jóna Rut
Í úrtakinu voru 300 íbúar í Grindavík og var svarhlutfall 52%. Svarendur eru jafnaði frekar ánægðir með þjónustu Grindavíkurbæjar og Grindavík sem stað til að búa á, en hvorutveggja er í meðaltali sveitarfélaganna. Ánægja með menningarmál og þjónustu leikskóla er mjög mikil.
6. 1501232 - Beiðni um viðauka: Tímabundið stöðugildi í Miðgarði
Til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, Marta, bæjarstjóri og Bryndís
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 1.015 þús kr. sem komi til hækkunar á launalið Miðgarðs, en til lækkunar á handbæru fé.
Samþykkt samhljóða
7. 1501104 - Frístunda- og menningarnefnd: Endurskoðuð samþykkt
Til máls tóku: Kristín María, Bryndís, Jóna Rut, Marta, bæjarstjóri, Guðmundur og Hjálmar
Tillaga að breytingu á samþykkt um frístunda-og menningarnefnd Grindavíkurbæjar lögð fram. Í tillögunni felst að stjórn UMFG og Ungmennaráði Grindavíkur er heimilt að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu í nefndinni með málfrelsi og tillögurétt. Seturéttur fulltrúa stjórnar UMFG er bundinn við málefni sem varða starfsemi félagsins.
Bæjarráð hefur fjallað um tillöguna og vísaði henni til afgreiðslu bæjarstjórnar með áorðnum breytingum.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða
8. 1501003F - Bæjarráð Grindavíkur - 1369
Til máls tóku: Kristín María, bæjarstjóri og Guðmundur, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerðin er lögð fram.
9. 1501004F - Bæjarráð Grindavíkur - 1370
Til máls tóku: Kristín María, Bryndís, Guðmundur og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram.
10. 1501002F - Félagsmálanefnd - 48
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
11. 1501001F - Frístunda- og menningarnefnd - 38
Til máls tóku: Kristín María, Bryndís, Jóna Rut, Guðmundur, Hjálmar og Páll Jóhann
Fundargerðin er lögð fram.
12. 1412010F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 49
Til máls tóku: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
13. 1501252 - Fundargerð: 455. fundur Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja
Til máls tók: Kristín María, Bryndís og Jóna Rut
Fundargerðin er lögð fram.
14. 1501256 - Fundargerðir: 14. og 15. fundur Reykjanes jarðvangs
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
15. 1501255 - Fundargerð: 39. fundur Heklunnar
Til máls tók: Kristín María
Fundargerðin er lögð fram.
16. 1501254 - Fundargerð: 685. fundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Til máls tóku: Kristín María og Guðmundur
Fundargerðin er lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:10.