Samfylkingin í Grindavík býður alla velkomna á fyrsta bæjarmálafund ársins. Fundurinn verður haldinn í aðstöðu flokksins á Víkurbraut (við hliðina á lögreglustöðinni) kl. 20.00. Efni fundarins er dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar sem haldinn verður þann 27. janúar en þar má meðal annars finna umfjöllun um íþróttamannvirki, deiliskipulög og könnun á þjónustu Grindavíkurbæjar.
Bestu kveðjur,
Stjórn Samfylkingarinnar í Grindavík