1. fundur umhverfis- og ferðamálanefndar haldinn í bæjarstjórnarsal, fimmtudaginn 22. janúar 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Gunnar Margeir Baldursson formaður, Anita Björk Sveinsdóttir aðalmaður, Magnús Andri Hjaltason aðalmaður, Jón Emil Halldórsson aðalmaður, Sigurveig Margrét Önundardóttir varamaður, Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Siggeir Fannar Ævarsson Upplýsinga- og skjalafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Siggeir F. Ævarsson, upplýsinga- og skjalafulltrúi.
Í upphaf fundar var farið yfir fundargátt one systems, lög og reglugerðir sem tengjast nefndinni og fundartímar ákveðnir.
Dagskrá:
1. 1501227 - Umhverfis-og ferðamálanefnd. Erindisbréf
Erindisbréfið tekið fyrir, afrit afhent nefndarmönnum og kynnt.
2. 1501160 - Metanólverksmiðja CRI í Svartsengi: Matsáætlun
Erindi frá skipulagsstofnun. Í erindinu er óskað eftir umsögn um drög að tillögu að matsáætlun skv. 2. mg. 8.gr. laga nr. 106/200. Nefndin gerir ekki athugasemd við að skýrslan verði unnin áfram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00.