Að gefnu tilefni viljum við formenn knattspyrnu og körfuknattleiksdeildar leiðrétta þann misskilning sem virðist vera í gangi um að selt verði sér inná ballið á þorrablótinu. En það er alveg skýrt af okkar hálfu og það verður ekki gert. Ástæðan er einfaldlega sú að við hugsum ballið eingöngu fyrir matargesti. En við viljum líka hvetja fólk til þess hjálpa okkur að gera þetta blót okkar Grindvíkinga enn stærra.
Á þessu kvöldi eiga þrír ættliðir að geta sameinast í einni góðri kvöldstund með öðrum Grindvíkingum sem hér búa ásamt brottfluttum. Hér áður fyrr var eitt stærsta ball ársins nýársball hjónaklúbbsins og á þessu balli skörtuðu allir sínu fínasta. Þetta er stemningin sem við viljum skapa á þorrablótinu okkar. Það er orðið lítið eftir af miðum og viljum hvetja alla sem hafa verið að velta því fyrir sér hvort þeir ætli að mæta að hætta nú að velta þessu fyrir sér og nálgast bara miða hjá þorrablótsnefndinni. Ekkert moðrek með það.
Jónas Karl Þórhallsson formaður Knattspyrnudeildar.
Jón Gauti Dagbjartsson formaður Körfuknattleiksdeildar.