Auglýsing um útboð á rekstri tjaldsvæðis við Austurveg í Grindavík

  • Fréttir
  • 19. desember 2014

Grindavíkurbær auglýsir til leigu aðstöðu og rekstur tjaldsvæðis í Grindavík í fjögur ár, eða frá 1. apríl 2015. Gert er ráð fyrir að leigutaki taki við aðstöðunni og sjái um allan daglegan rekstur svæðisins og umhirðu að hluta, ásamt markaðssetningu þess.  

Ætlast er til að bjóðendur kynni sér vel allar aðstæður á staðnum. Boðið er upp á vettvangsskoðun mánudaginn 5. janúar desember kl. 13:00. 

Tilboðsfrestur er til kl. 11.00, mánudaginn 19. janúar 2015. 

Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, Grindavík, kl. 11.00 þann 19. janúar að 
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Þeir sem áhuga hafa á að gera tilboð í leigu tjaldsvæðisins geta nálgast útboðsgögn með því að senda beiðni um gögn á netfangið thorsteinng@grindavik.is. Óski bjóðendur að fá útboðsgögn á pappírsformi verða þau seld í afgreiðslu sveitarfélagsins fyrir kr. 2.000.-

Veittur er fyrirspurnarfrestur til kl. 11.00 þann 12. janúar 2015. Öllum fyrirspurnum verður svarað skriflega til þeirra sem tekið hafa gögn. Tilboði skal skila í lokuðu umslagi þannig merktu:
„ÚTLEIGA Á REKSTRI TJALDSVÆÐISINS Í GRINDAVÍK - TILBOÐ"
Á umslaginu skal koma greinilega fram nafn og heimilisfang tilboðsgjafa.

Tilboð skulu send til: 
Grindavíkurbær, Víkurbraut 62, 240 Grindavík.

Nánari upplýsingar gefur Þorsteinn Gunnarsson, sviðstjóri frístunda- og menningarsviðs, á skrifstofu sveitarfélagsins, í síma 420 1100 eða netfang thorsteinng@grindavik.is

Áskilinn er réttur til að hafna öllum tilboðum. Öllum tilboðum verður svarað skriflega eftir að ákvörðun bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar liggur fyrir.


Deildu þessari frétt

AÐRAR TILKYNNINGAR

Fréttir / 29. september 2023

Útboð vegna verkfræðihönnunar sundlaugar

Fréttir / 2. ágúst 2023

Starfsfólk óskast í heimaþjónustu

Fréttir / 15. júní 2023

Umferðaröryggistefna í kynningu

Skipulagssvið / 24. nóvember 2022

Deiliskipulag við Þorbjörn - auglýsing

Skipulagssvið / 31. maí 2022

Nýjar reglur um lóðarúthlutanir

Skipulagssvið / 13. maí 2022

Deiliskipulag fyrir Laut – auglýsing

Skipulagssvið / 2. mars 2022

Skyndilokun á köldu vatni

Fréttir / 16. febrúar 2022

Útboð: Útdraganlegir áhorfendabekkir

Fréttir / 2. desember 2021

Auglýsing um aðalskipulagsbreytingar

Höfnin / 8. nóvember 2021

Beðið eftir varahlutum