Ár 2012, þriðjudaginn 10. janúar var haldinn 2. fundur ungmennaráðs Grindavíkur. Fundurinn var haldinn í félagsmiðstöðinni Þrumunni og hófst kl. 20:00.
Mættir:
Aðalmenn: Kristín M. Ívarsdóttir, Katla Marín Þormarsdóttir, Nökkvi Harðarson, og Reynir Berg Jónsson.
Sigurbjörg Vignisdóttir boðaði forföll. Unnar Hjálmarsson og Rósa Sveinsdóttir mættu ekki.
Jafnframt sat fundinn Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1) Málefni frá fulltrúum ungmennaráðs. Meðal málefna sem ungmennaráð vill beita sér fyrir er m.a.: - að koma upp aðstöðu og auka framboð tómstunda meðal ungmenna 16 - 18 ára
- að skoðað verði með meiri opnun á íþróttahúsinu yfir sumartímann
- að bæjaryfirvöld leggi meiri metnað og stuðning við einstaklingsíþróttir
- að aukið verði við tómstundaframboð fyrir ungmenni t.d. dans.
2) Staðsetning félagsmiðstöðvar til framtíðar - kostir og gallar. Rætt var um kosti og galla þess að framtíðarhúsnæði félagsmiðstöðvar í Grindavík yrði komið fyrir á íþróttasvæðinu eða við grunnskólann. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
3) Sameiginlegur fundur með frístunda- og menningarnefnd. Ungmennaráð mun funda með frístunda- og menningarnefnd mánudaginn 6. febrúar.
4) Heimsókn á Akranes. Samþykkt að ungmennaráð fari í kynnisferð á Akranes og hitti fulltrúa ungmennaráðs þar á bæ og fái kynningu á því starfi sem Ungmennaráð Akraness hefur unnið á undanförnum árum.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 21:00
Reynir Berg Jónsson
Kristín M. Ívarsdóttir
Katla Marín Þormarsdóttir
Nökkvi Már Harðarson