Síðastliðið mánudagskvöld fóru fram í Grindavíkurkirkju glæsilegir styrktartónleikar sem hinn 13 ára Alexander Birgir Björnsson skipulagði til styrktar Einhverfusamtökunum og Birtu - landssamtökum foreldra barna/ungmenna sem látist hafa fyrirvaralaust. Boðið var uppá þriggja tíma dagskrá þar sem landsþekktir tónlistarmenn léku fyrir troðfullu húsi.
Alexander naut liðsinnis frænda síns, Péturs Arnar Guðmundssonar, einnig þekktur sem Pétur í Buffinu eða hreinlega Pétur Jesú við skipulag tónleikanna sem hóaði í nokkra vini og kunningja svo að úr varð hreinasti stjörnufans.
Söngvarar voru þau Magni, Jógvan, Erna Hrönn, Eyþór Ingi, Matti Matt, Sigríður Eyrún, Einar Clausen, Alma Rut og Óskar A. Bjartmarsson, ásamt Grindvíkingunum Dadda Willards og Agnari Steinarssyni. Söngvararnir voru svo vandlega studdir af þéttri hljómsveit, en hljóðfæraleikarar voru þeir Pétur Örn, Hannes Friðbjarnarson, Einar Þór Jóhannsson, Karl Olgeirsson og Þorgils Björgvinsson.
Lögin komu úr ýmsum áttum og spönnuðu allan skalann. Róleg, angurvær, og hugljúf lög. Stöku jólalög og svo allt yfir í rokkslagara. Hápunktur tónleikanna var án vafa undir lokin en þakið ætlaði hreinlega að rifna af húsinu í þremur síðustu lögunum. Fyrst sungu þeir Agnar og Daddi lagið Footloose, nema með íslenskum texta og hét það Hópknús í þeirra flutningi. Síðan tóku þeir Magni og Eyþór Queen lagið Under Pressure og enduðu tónleikarnir síðan á því að allir listamennirnir komu saman á sviðið og tóku lagið Lifi ljósið úr söngleiknum Hárinu.
Heilt yfir var þetta yndisleg stund í Grindavíkurkirkju og frábært að sjá hvað Grindvíkingar sýndu þessu framtaki mikinn áhuga. Alexander og aðstendur hans eiga heiður skilið fyrir þetta glæsilega framtak.
Kynnar kvöldsins, Daddi og Alexander
Rífandi stemming á sviðinu í lokalaginu
Eyþór þenur raddböndin eins og honum einum er lagið
Sigríður Eyrún var ólétt en lét það ekki stoppa sig
Hópknús
Ef þú ert hálfdán - lífið tóm áþján
Bældur, spældur - hamingjuhamlaður
Þá hef ég svarið - og það er sannreynt af mér
Taktu af skarið - og farð‘ að gefa af þér!
Þú þarft að fá gott knús, hópknús
Breiða út faðminn fús
Hringja í Hlyn, kreista þinn besta vin.
Hrósa Hrönn, vináttuböndin sönn
Burt með blús, fáðu þér gott hópknús
Ég þjáðist af sút - hafði á munninum stút
En gleðin bjó inní mér - Ég varð að hleyp‘ enni út
Ég átti það skilið - að finna minn innri mann
Það brúar bilið - að reyn‘ að elska náungann!
Það er sætt ef þú gefur gott knús, hópknús
Vertu nú æ knúsfús
Þinn mann, Jóhann, taktu nú utan um hann
Stína mín, komdu í kaffi til mín
í kaffilús, í krúttlegri kaffikrús
ooooh-oh-oh - (gott hópknús)
ooooh-oh-oh - (gott hópknús)
ooooh-oh-oh - (gott hópknús)
Oooooooooh
Við erum skytturnar þrjár!
og bara einn hefur hár!
Við skulum taka knús .... a a a a a!
Við fundum mús! Hópknús
Við erum allir dús
Helga Hlín, komdu að gera grín
Gunni minn, hleyptu gleðinni inn
Burt með blús, fáðu þér gott hópknús
(hópknús) hópknús
Opnaðu á gátt þitt hús
Plís Þórdís, sleikjum saman einn ís
Siggi Hall, komdu með mér á ball
Burt með blús, allir þurfa gott, allir þurfa gott
allir þurfa gott, allir þurfa gott
allir þurfa gott, allir þurfa gott
(allir þurfa) allir þurfa gott hópknús