Í einni af bláu útistofunum við Grunnskólann er félag eldri borgara búið að koma sér upp skemmtilegri aðstöðusem er opin frá klukkan 10-12 og 13-16 alla virka daga. Á staðnum eru tvö billard borð, píluspjald og nokkur taflborð.
Aðsóknin hefur verið afar góð og meðfylgjandi eru nokkrar myndir. Alltaf er heitt á könnunni og allir velkomnir.