Starfsmađur óskast viđ íţróttamiđstöđ Grindavíkur

  • Fréttir
  • 24. nóvember 2014

Grindavíkurbær auglýsir eftir starfsmanni, karl eða konu, til að starfa við íþróttamiðstöðina. Helstu verkefni eru öryggisgæsla í sundlaug, klefavarsla, ræstingar, eftirlit og afgreiðsla. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu. Reiknað er með að viðkomandi hefji störf í janúar 2015.   

Leitað er að einstaklingi sem hefur;

- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, getur unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum,
- reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum
- þekkingu í skyndihjálp og getu til að standast kröfur sem gerðar eru til sundlaugarvarða.

Vakin er athygli á því að ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ GRINDAVÍKUR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 660 7304, eða á netfangið hermann@grindavik.is.

Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar (www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi 10. desember n.k. Umsókninni skal skila á netfangið hermann@grindavik.is eða beint til forstöðumanns.

Frístunda- og menningarsvið Grindavíkurbær


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir