Sem kunnugt er var Norræna deildin í Grindavík endurvakin á dögunum. Aðalfundur félagsins verður 10. janúar nk. Undirbúningsnefndin leitar að góðu fólki sem hefur áhuga á Norrænu samstarfi og vill taka þátt í skemmtilegu starfi. Allir áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Kristínu Pálsdóttur (kristinep@grindavik.is).
Aðalfundur Norræna félagsins í Grindavík
Aðalfundur Norræna félagsins í Grindavík verður haldinn laugardaginn 10. janúar kl. 11:00 í Kvikunni.
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og ritara.
2. Skýrsla stjórnar um störf og fjárhag félagsdeildarinnar.
3. Kosning formanns til tveggja ára
4. Kosning stjórnar, varastjórnar og endurskoðenda fyrir næsta starfsár
5. Kosning fulltrúa og varamanna á sambandsþing
6. Ný lög Norræna félagsins í Grindavík lögð fram til umræðu og afgreiðslu.
7. Önnur mál.
Allir þeir sem hafa áhuga á Norrænu samstarfi eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í skemmtilegu og gefandi Norðurlandasamstarfi.