Mar Guesthouse leitar að gömlum myndum af Hafrenning/Lagmetinu (Hafnargata 28). Í þessu sögufræga húsnæði hefur verið allskonar skemmtilegur rekstur í gegnum árin, t.d. sláturhús, lagmeti, líkamsrækt og fleira. Leitað er eftir myndum frá öllum tímaskeiðum og öllum þeim rekstri sem hefur verið í húsinu í gegnum árin.
Ef einhver lumar á myndum er sá hinn sami beðinn um að senda póst á Þorsteinn Finnbogason, steini@voot.is