Það verður heldur betur mikil menningarveisla næsta laugardag en þá verður Norrænn dagur með ýmsum uppákomum að degi til en svo lýkur deginum með tónleikum bæjarlistamannsins Halldórs Lárussonar.
NORRÆNN DAGUR Í KVIKUNNIí Grindavík
laugardaginn 15. nóvember
Kl. 10:00-12:00 Ljóðasmiðja
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson skáld heldur hraðnámskeið í nútíma ljóðagerð.
Farið yfir helstu atriði sem hafa ber í huga og lauflétt verkleg kennsla fyrir byrjendur og lengra komna. Aðgangur ókeypis.
Ljóðasmiðjan er ætluð fólki frá 15 ára aldri, en fjöldi þátttakenda takmarkaður og því nauðsynlegt að skrá sig á netfangið thorsteinng@grindavik.is,
í síðasta lagi 14. nóvember kl. 16:00.
Kl. 14:00 Tækifæri í Norrænni samvinnu - Málþing og Norræn deild í Grindavík endurvakin
Kvikan, Grindavíkurbær og Norræna félagið á Íslandi standa að málþingi um mikilvægi Norræns samstarfs, tækifæri og möguleika í norrænu samstarfi. Að málþingi loknu verður deild Norræna félagsins í Grindavík endurvakin.
Stjórnandi: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.
Dagskrá:
1. Norrænt samstarf
Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, formaður Norræna félagsins á Íslandi og deildarstjóri í
mennta- og menningarmálaráðuneytinu, fer yfir helstu þætti í Norrænu samstarfi, tilgang þess og helstu verkefni.
2. Styrkjamöguleikar til menningarmála á Norðurlöndum
Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, formaður Norræna félagsins.
3. Starfsemi Norræna félagsins á Íslandi bæði innanlands og á norrænum vettvangi
Ásdís Eva Hannesdóttir og Ragnheiður H. Þórarinsdóttir formaður Norræna félagsins.
4. Deild Norræna félagsins í Grindavík endurvakin
Kristín Pálsdóttir fer yfir sögu deildar Norræna félagsins í Grindavík og í kjölfarið verður starfsemi hennar endurvakin.
Léttar veitingar. Allir velkomnir.
Kl. 17:00 Norrænt Ljóða- og vísnakvöld í tali og tónum
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson rithöfundur og tónlistarmaður flytur lög og ljóð frá Norðurlöndunum
Satu Takkinen frá Piteå, vinabæ Grindavíkur í Svíþjóð, flytur frumsamin ljóð og lög.
Halldór Lárusson bæjarlistamaður og fleira tónlistarfólk tengt Norðurlöndunum.
Aðgangur ókeypis.
Viðburðurinn er styrktur af Menningarráði Suðurnesja
Bæjarlistamaðurinn Halldór Lárusson með tónleika á Salthúsinu
laugardaginn 15. nóvember kl. 21:00
Bæjarlistamaðurinn Halldór Lárusson heldur tónleika á Salthúsinu í Grindavík laugardagskvöldið 15. nóvember kl. 21. Með honum leika m.a. Hallur Ingólfsson á gítar, Hörður Ingi Stefánsson á bassa, Jóhann Ingvason á hljómborð ásamt fleiri góðum gestum.
Halldór leikur mest efni sem hann aðstoðaði vin sinn og tónlistarmann Hall Ingólfsson að flytja en Hallur gaf út sólóplötuna Öræfi ekki fyrir svo löngu. Einnig fljóta með lög sem hafa haft afgerandi áhrif á Halldór sem tónlistarmann.