Styrktartónleikar Alexanders vekja athygli á landsvísu og uppselt á tónleikana

  • Fréttir
  • 10. nóvember 2014

Eins og við greindum frá á dögunum hefur ungur Grindvíkingur, Alexander Birgir Björnsson, blásið til glæsilegra tónleika í Grindavíkurkirkju þann 24. nóvember þar sem fjölmargir landsþekktir listamenn munu stíga á stokk. Tónleikarnir hafa vakið mikla athygli hér í bæ en allur ágóði af þeim mun renna til Einhverfusamtakanna og Birtu - landssamtaka foreldra barna/ungmenna sem látist hafa fyrirvaralaust.

Á Vísi.is var fjallað um tónleikana síðastliðinn fimmtudag, og er skemmst frá því að segja að í kjölfarið seldist upp á tónleikana á örskotsstundu og komust færri að en vildu. Nú er í skoðun hvort hægt sé að flytja tónleikana í íþróttahúsið og skýrist það vonandi á næstu dögum.

Frétt Vísis um málið:

,,Alexander Birgir Björnsson, þrettán ára nemandi í Grunnaskóla Grindavíkur, stendur fyrir tónleikum 24.nóvember til styrktar Einhverfusamtökunum og Birtu - landssamtökum foreldra barna/ungmenna sem látist hafa fyrirvaralaust. Margir af helstu tónlistamönnum þjóðarinnar munu stíga á stokk og skemmta viðstöddum.

Alexander hefur átt sér þann draum að fá að halda tónleika og með aðstoð fjölskyldu sinnar verður þessi draumur að veruleika nú síðar í þessum mánuði. Alexander og fjölskylda hans völdu þau styrktarsamtök sem standa þeim nærri. Hann er einhverfur og hefur, þrátt fyrir ungan aldur, misst afar marga nákomna sér.

„Hann varð fyrir miklu áfalli árið 2010. Á hálfu ári missti hann bróður sinn, afa, langafa, systur pabba síns og vinkonu sína og þetta tók mikið á hann," segir Elín Björg Birgisdóttir, kennari og móðir Alexanders.

Bróðir Alexanders, Kjartan Björnsson, varð fyrir lest í Drammen í Noregi árið 2010. Hann var 23 ára gamall þegar hann lést. Í kjölfarið voru landssamtökin Birta stofnuð, en fjölskylda Kjartans er á meðal stofnfélaga.

„Þetta var rosalega erfitt en við erum að sigla inn í betri tíma. Tónlistin hefur hjálpað honum rosalega mikið og hann sækir mikið í tónlist," segir Elín.

Alexander er afar sjálfstæður en móðir hans komst á síðasta ári fyrir tilviljun að hann hefði ákveðið upp á eigin spýtur að ráðast í þetta verkefni og byrjað að bjóða á tónleikana. Þegar hún spurði hann hverjir það yrðu sem myndu stíga á svið svaraði hann: „Nú, ég og fleiri frægir", en yfirskrift tónleikanna er einmitt „Ég og fleiri frægir".

Tónleikarnir verða haldnir í Grindavíkurkirkju og á meðal þeirra sem fram koma er Guðrún Gunnars, Erna Hrönn, Jógvan Hansen, Pétur Örn Guðmundsson, Magni, Eyþór Ingi og Matti Matt. Miðaverð er 2.500 krónur fyrir fullorðna og 1.000 krónur fyrir 12 ára og yngri. Allur ágóði rennur óskertur til fyrrgreindra samtaka.

Hægt er að nálgast miða hjá Elínu í gegnum netfangið elin@grindavik.is. Þeim sem vilja styrkja samtökin er bent á reikningsnúmerið: 516-14-300199
Kt: 050267-5479.

„Hann gefur svo mikið af sér og vill svo mikið gefa af sér. Þannig að þetta er langþráður draumur að rætast," segir Elín að lokum."

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir